Jón Ólafur skrifar frá Melbourne, Ástralíu

Hinar ýmsu pælingar, efnahagsmál og þjóðmálaumræða. Eða eitthvað í þeim dúr

29.9.05

Lunch í Seðlabankanum

Hagfræðingur af hagfræðisviði Seðlabankans bauð mér í lunch í Seðlabankanum í dag. Á matseðlinum var svínakambur með öllu mögulegu meðlæti.
Það var pínu sérstakt að sitja í mötuneyti bankans í dag vegna þeirrar miklu óvissu sem ríkir um það hvað bankinn mun gera hvað varðar stýrivextina.

Guðjón, takk fyrir mig.

27.9.05

Hátíðisdagur á Íslandi

Í dag er mikill hátíðisdagur á Íslandi:

Davíð er hættur í pólitík, jibbí jey. Þar kom að því :)

16.9.05

Smá hagfræði

Eins og margir tóku eftir nú í vikunni kom tilkynning frá hagfræðisviði Seðlabankans um að verðbólgan væri nú orðin 4,8%, sem er 0,8% (80 bp) fyrir ofan efri mörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans.

Út frá ofanrituðu þá er það mín spá að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti sína um 0,25 - 0,5% þann 29.9.2005, eða jafnvel fyrr ef hann telur ástæðu til.
Rök:
Um leið og tilkynningin kom frá bankanum um að verðbólgan væri komin í 4,8% fóru fjármálagúrúar landsins að spá því að bankinn myndi hækka stýrivextina um allt að 0,75%. Þá þegar voru slíkar væntingar teknar inn í verð ríkistryggðra skuldabréfa. Þegar tilkynningin kemur frá bankanum, þ.e. ef 0,75% hækkun, mun það ekki hafa tilætluð áhrif, til lækkunar á verðbólgunni, vegna þess að það verður þá þegar komið inn í dæmið.
Vegna þessa spái ég því að vextirnir verði einungis hækkaðir um 0,25 - 0,5% og í kjölfarið af því mun koma slaki í hagkerfið, tímabundið, sem mun leiða til lægri verðbólgu.
Slakinn mun koma til vegna þeirrar spennu sem hefur myndast nú þegar á markaðnum vegna hárrar verðbólgu, fjárfestar munu verða afslappaðir í einhvern tíma.

ATH; þetta mun ekki gerast strax heldur munu fyrstu áhrifin ekki koma að einhverju leyti fram fyrr en eftir ca 6 mánuði og vera að fullu komin í gegnum hagkerfið eftir 18 mánuði.

Köben, here we come

Dagana 22. - 25. september munum við Katrín vera í kongens Köbenhavn.
Ef einhverjir, af þeim fjölmörgu sem þar eru, vilja hitta okkur og kenna okkur inn á danska menningu þá er ykkur velkomið að hafa samband. Því fyrr því betra.

14.9.05

Í blöðunum

Haldið þið ekki bara að karlinn hafi komist í DV vegna síðasta pistils.
Reyndar var ekki haft samband við mig, sem betur fer, heldur var farþegi í hinni rútunni sem sendi fréttina og myndir til DV.
Fyrir áhugasama má finna þessa frétt í DV þann 13.sept 2005, bls 4. Ef þið komist ekki yfir eintak þá hnuplaði ég einu af kaffistofunni á Hlöðunni. Eiginhandaráritanir verða afgreiddar um leið og þær verða pantaðar :)

13.9.05

Off road driving

Síðastliðin helgi var minnisstæð að mörgu leyti, þó sérstaklega laugardagurinn.

Þannig var að förinni var heitið inn í Þórsmörk á fjallarútu með ca 15 túrista auk leiðsögumanns.
Þegar komið var austur að Seljalandsfossi var tekin ákvörðun um það að vera í fylgd með annarri rútu sökum mikilla vatnavaxta. Vegurinn var orðinn frekar grófur og töluverðir bakkar reyndust vera við suma lækina á leiðinni inn úr sem eru venjulega sárasaklausir. Allt gekk þetta vel og á leiðinni bættist þriðja rútan í hópinn. Sá bílstjóri hringdi og sagðist ekki treysta sér út í aðra erfiðustu ánna á leiðinni, Steinholtsá. Rútan sem ég elti fór fyrst út í og fór sá bílstjóri hið hefðbundna vað, við hinir eltum og allt í gúddí. Eftir smá stund var komið að annarri á sem hefur verið ansi erfið í sumar, Hvanná. Ég skellti mér í gönguskó og legghlífar og óð út í til að leita að vaði en fann ekkert sem ég treysti mér í. Í því komu 2 jeppar og fóru beint út í án þess að hika.
Nú byrjuðu ævintýrin því karlinn á rútu nr 3 ákvað að fara sömu leið og jepparnir og viti menn hann náði að festa sig án þess svo mikið að hafa náð að setja hálfa rútuna út í ánna. Eftir smá spól og fjör náði ég að losa rútuna. Þá ákváðum við leiðsögumaðurinn að snúa bara við því það væri ekkert vit í því að æða þarna yfir.
Á leiðinni til baka vorum við bara 2 rútur á ferðinni, ég og rúta nr 3. Þegar við komum að Steinholtsá gerði hann hræðileg mistök, hann skellti sér bara út í án þess að hugsa út í það hvernig hann fór yfir fyrr um daginn. Það endaði með ósköpum því framendinn á þeirri rútu datt ofan í hyl og pikkfestist. Eftir 2-3 mínútur fór rútan að halla um ca 20-30 gráður og var þá ákveðið að flytja fólkið í land. Ég hljóp eftir kaðli og festi í rútuna hjá mér og óð svo út í straumharða ánna, langleiðina upp í klof, til að festa í hina rútuna. Ef þið vissuð það ekki þá er vatn blautt og jökulvatn er ískalt. Rútan mín réð ekki við þetta dæmi og var því brugðið á það ráð að hringja í vörubíl sem náði að losa rútuna. Vörubíllinn þurfti að spóla sig áfram til að losa rútuna.
Þetta ævintýri tók ca klukkutíma en mikið djö var nú gott að geta farið loks úr blautum skónum, sokkunum og buxunum og í hrein og hlý föt því það er algjört must að hafa með sér aukasett af fötum þegar maður er að fara í svona ferðir.

Hvaða lærdóm getur maður dregið af þessu?
Maður á aldrei að æða út í straumharða á ef maður hefur ekki mikla reynslu af fjallaferðum og maður á alltaf að hlusta á og taka þátt í umræðum um hentugustu leiðina.
Ekki er ráðlegt að elta jeppa því þeir komast næstum allar leiðir.

12.9.05

Hótel Holt

Á föstudaginn skrapp fjölskyldan út að borða á Hótel Holt í tilefni af því að amma gamla varð áttræð. Ég fékk mér eftirfarandi dinner:

Sælkeraseðill
Steikt gæsalifur með steiktum lerkisveppum og roðarunna eplum
Ristuð hörpuskel í piparhjúp og humar í tempurameð myntusalati og humar vinaigrette
Steiktar nautalundir með kantarellum, uxahalaragú, piparrótarkartöflum og kálfasoðkjarna
Súkkulaðitart með hesilhnetuís og gljáðum banana.


Að auki var komið með sýnishorn af tveimur smáréttum, lerkiviðarsúpu og eitthvað jarðarberjasull, svona til að auka matarlystina.

Ég get sko alveg mælt með þessu en helsti gallinn var stærð skammtana, þeir hefðu mátt vera aðeins stærri.